FRÁ OVIEDO TIL SANTIAGO DE COMPOSTELLA  31. ÁGÚST – 16. SEPT

Ferðalýsing


1Mánud. 31. ágúst

Brottfaradagur 31.ágúst

Keflavík – Oviedo

Nánar síðar!

 

2Oviedo

Í Oviedo þurfum við að heimsækja La Catedral de San Salvador og sækja Credenciales sem er nokkurs konar vegabréf, látum stimpla þau síðan á leið okkar til Santiago til að tryggja okkur aflausn að ferð lokinni í Santiago.

Oviedo er við Biskajaflóa og er höfuðborg sjálfstjórnarhéraðsins Austurias. Íbúar eru um 220 þús. Í borgarastríðinu var 3ja mán. umsátur um borgina, en hún fell að lokum fyrir sveitum Francos.

Gistum á: Auglýst síðar

3Þriðjudag. 1. september

1. Göngudagur Oviedo – Cornellana 26 km

  • Lagt af stað frá Catedral í miðbænum
  • Helstu viðkomustaðir í dag:
  • Escamplero eftir 11 km. bar/restaurant og lítil verslun
  • Premono 4,2 km, bar og verslun
  • Penaflor 6 km. Bar/restaurant
  • Grado 5 km. Íbúar rúml 7 þúsund, .
  • Allt til alls, apótek, verslanir, bakarí banki og bar
  • Cornellana 3 km, bar/restaurant, apótek og verslun. Þar er albergue í Monasterio frá 1024

4Miðvikud. 2. september

2. Göngudagur frá Cornellana –Salas 12 km

  • Frá Grado förum við frá Plaza Ayuntmiento..
  • Helstu viðkomustaðir í dag:
  • San Juan de Villapañada 4,3 km, alberque (huganlega hægt að fá e-ð)
  • St Eulalia de Dórica 5 km, albergue og bar
  • Cornellana 3 km, bar/restaurant, apótek og verslun. Þar er alberqan í Monasterio frá 1024
  • Salas 9,4 km, 1500 íbúar. Allt til alls
  • Ath fáir viðkomustaðir á morgun

 

5Fimmtud. 3. september

3. GÖNGUDAGUR: Salas- Tineo 20,2 km

  • Farið frá Salas yfir bogabrúnna
  • Ganga í gegnum skóg hækkun ca 500m
  • Bodenaya 6,8 km. “dásamleg alberque á staðnum,
  • eftir 1 km er það Espina og þar er bar og verslun. Þessi leið getur verið erfið yfirferðar, sérstaklega í bleytu.
  • El Pedregal 3,7 km. þar er bar
  • Tineo 7 km. 3800 íbúar, allt til alls

6Föstud. 4. september

4. Göngudagur frá Tineo – Pola de Allande 28,2 km

  • Auðvelt er að fá morgunmat á leiðinni út úr bænum, barir og bakarí sem opna snemma, það eru hækkanir/lækkanir í dag gott að vera vel undirbúin.
  • Helstu viðkomustaðir:
  • Campiello eftir ca 12-13 km, þar eru barir, verslanir og albergues.
  • Borres eftir 4 km, þar er bar
  • Porcieles eftir 7 km, bar
  • Pola de Allande, allt í boði

7Laugard. 5. september

5. Göngudagur: Pola de Allande – Berducedo  16,8 km     

  • Förum út úr bænum á Avenida Principal, Ámerica og síðan Galicia, upp upp …..
  • Peñaseita 3 km, alberque og bar
  • Puerto de Palo 5 km, á toppnum
  • Montefurado 2 km bær sem birtist inn á milli fjalla, einn íbúi ! Áður fyrr var þar sjúkrahús fyrir pílagríma ( sjá mynd)
  • Lago 4 km, alberque, bar, verslun,
  • Berducedo

8Sunnud. 6. september

6. Göngudagur frá Berducedo – Grandas de Salime 23 km

  • 8 km niðurganga sem getur reynt á, búa vel að fótum, tám, hafa stafi meðferðis
  • Göngum í átt að uppistöðulóni/stíflu Embalse de Salima
  • Á miðri leið er möguleiki á að fá sér að borða á Hotel Las Grandas (985 627 230)
  • Buspol 2,3 km gamalt pílagrímasjúkrahús
  • Embalse de Salime 10 km bar, hotel restaurant
  • Grandas de Salima 16,8 km allt í boði

9Mánud. 7. september

7. Göngudagur frá Grandes – Fonsagrada í Galicia 28,1 km

  • Erum aðeins á uppleið í dag
  • Cereixeira 3,2 km bar
  • Castro 3 km, bar, restaurant, hotel
  • Gestoselo 2,5 km
  • Peñafonte 2,2 km
  • Venta del Acebo 4,4 km, toppnum náð, bar og verslun
  • Fonfría 4 km, bar og verslun
  • A Fonsagrada 8 km öll þjónusta

10Þriðjud. 8. september

8. GÖNGUDAGUR FRÁ FONSAGRADA- O CÁDAVO 23,4 KM

  • ERUM Í CA. 900 M HÆÐ
  • O PADRON EFTIR 1.5 KM
  • PARADAVELLA 10 KM
  • A LASTRA 5 KM ( UPPLEIÐ)
  • FONTANEIRA 3. KM
  • CÁDAVO 5 KM ÖLL ÞJÓNUSTA

11Miðvikud. 9. september

9. Göngudagur frá Cádavo-Lugo 30,5 km

  • Lengri göngudagur en í gær en leiðin auðveldari, dagur til að njóta náttúru og landslags,
  • Castroverde 8,5 km. Bakarí, verslun og bar
  • Vilar de Cas 7 km. Sjálfsali
  • As Casas da Viña 9 km. Sjálfsali
  • Castelo, göngum hjá merki sem á stendur 104,241 km til Santiago
  • Lugo 5 km. Allt til alls

12Fimmtud. 10. september

10. Göngudagur Lugo – San Romao da retorta 19,7 km

  • Þægilegur dagur, mest á steini samt sem getur verið þreytandi fyrir fætur.
  • Förum la rúa das Noreas á leið úr bænum
  • San Lazaro 2,3 km. Bar
  • San Vicenzo do Burgo 7,5 km. Bar
  • Taboeiro 7,5 km. Matsöluhús
  • San Romao 3 km,

13Föstud. 11. sept

11. Göngudagur San Romao- Melide 27,7 km

  • Leiðin sögð vera „ eins og stórt sveita völundarhús“ Göngum inn á El camino Francés í dag !
  • Burgo de Negral 3,1 km. Smáverslun
  • Ponteferreira 7 km. Bar, veitingahús
  • As Seixas 6 km. Bar og verslun eftir 1 km
  • Irago de Arriba 9 km. 2 km í viðbót og við göngum inn á El camino Francés !
  • Melide 5,5 km. Öll þjónusta

14Laugard. 12. september

12. Göngudagur frá Melide – Arzúa  15 km

  • Það er stutt á milli staða, landslagið milt og fallegt, blíðar brekkur, skógarrjóður
  • Það verður meira um manninn þar sem þessar tvær leiðir; Camino Frances og Camino Primitivo hafa nú sameinast,
  • Njótum göngunnar, getum leyft okkur að slaka á og njóta eins og aldrei áður.
  • Erum lítið á malbiki, höfum jörðina undir fótum
  • Viðkomustaðirnir eru ótal margir, lítið þorp Galiciu sem hafa byggst upp í kringum þessa göngu.
  • Aðalstræti er þessi kafli nefndur

15Sunnud. 13. september

13. Göngudagur frá Arzúa – O Pedrouzo. 19,5 km

  • Því meir sem nálgast er Santiago því fleiri eru kirkjurnar og önnur minnismerki sem reist hafa verið á Jakobsstígnum.
  • Göngum í gegnum mörg smáþorp og bæi og eins og áður er óþarfi að bera mikið með sér.
  • Góðir og mjúkir göngustígar í dag
  • Eftirvæntingin eykst, margir pílagrímar hafa bæst í hópinn og eftirvæntingin verður nánast áþreifanleg
  • Þetta er dagur til að njóta og vera til, gangan auðveld og lokatakmarkið að nálgast.

16Mánud. 14. september

14. Göngudagur frá O Pedrouzo – Santiago de Compostela 20 km

  • Þá er það lokatakmarkið !
  • Síðasti göngudagurinn og hápunkti er náð á Unaðsfjallinu eða el Monte del Gozo.
  • Göngum stolti inn í borgina, njótum þess að hafa náð þessum áfanga !
  • Verðum okkur úti um aflátsbréf og heimsækjum El Catedral
  • FRÍDAGUR þriðjudaginn 15. september

17Miðvikud. 16. september

Heimferðardagur


Pantanir og fyrirspurnir: Sigrún Ásdís, s. 860-6644 og sigrunasdis@camino.is

*Kortið sýnir leiðina í grófum dráttum en er ekki 100% nákvæmt.

Verð og Almennar upplýsingar

  • Verð er kr 352.600 á mann miðað við tvo í herbergi
  • Aukagjald fyrir einbýli er kr 30.000 ( ath ekki alls staðar í boði)

Innifalið í verði er:

  • Flug
  • Akstur til og frá flugvelli
  • Leiðsögn
  • Gisting og morgunverður
  • Trúss ( 10-12 kg ) miðast við handfarangurstösku: 55x20x40 cm
  • Kvöldverður síðasta kvöldið

Lengd ferðar

  • Komið til Oviedo að kvöldi 31. ágúst, fyrsti göngudagur er 1. september
  • Göngudagarnir eru alls 14, samtals verða gengnir 315 km.
  • Alls 17 daga ferð
  • Byrjum í Asturias, endum í Galicíu í höfustaðnum Compostella,
  • Þar sem við fáum syndaaflaust ef guð lofar
  • Vegalengdir  eru ónákvæmar  og tölur geta breyst.
  • Einn aukadagur er í Compostella áður en haldið verður heim þann 16. septbember, samtals eru þetta því 16 dagar
  • Á þessum tíma er meðalhiti í kringum 20-22° C