Á vegum Jakobs

Á vegum Jakobs 2025

Ferðalýsingar:

ATH Skráningu í ferðir lýkur þann 10. apríl 2025.

Vinsamlegast sendið fyrirspurnir og pantanir á netfangið sigrunasdis@camino.is. Í pöntun þarf að koma fram: fullt nafn eins og í vegabréfi, kennitala, númer og gildistíma vegabréfs, sími og heimilisfang, taka fram hvort um einbýli eða tvíbýli sé að ræða.


24. maí – 3. júní Via de la Plata: síðustu ca 110 km frá Ourense í Galiciu til Santiago de Compostela Fremur fáfarin leið með fallegri náttúru. Dagleiðir frekar stuttar, 2 dagar þar sem farið er yfir 20 km. Brekkur fáar og ekki erfiðar. Flogið til Santiago með millilendingu, gist í Santiago fyrstu nóttina og farið síðan með lest til Ourense. Heimferðin er beint flug frá Porto í Portúgal en þar verður gist síðustu nóttina.


7. júní – 21. júní El Camino Portugués central: síðustu 200 km frá Barcelos í Portúgal til Santiago de Compostela á Spáni Beint flug með Play (ekki innifalið) til Porto, þar er tekið á móti hópnum og ekið á upphafsstað göngu daginn eftir. Eftir frídag í Santiago er farið með rútu aftur til Porto og gist þar og farið heim næsta dag að kvöldi.


27. ágúst – 11. september El Camino Norte: Jakobsvegurinn frá Luarca til Santiago de Compostela (260 km) Flug með einni millilendingu á Asturias flugvöll, ekið til Luarca og gist eina nótt og haldið af stað daginn eftir. Að göngu lokinni og eftir frídag í Santiago er bílferð til Porto og flogið síðan heim að kvöldi daginn eftir.


14. september – 28. september El Camino Norte: Jakobsvegurinn frá Bilbao til Llanes (213 km) Flug með einni millilendingu til Bilbao, gist þar eina nótt og haldið af stað daginn eftir. Að göngu lokinni er bílferð frá Llanes til Bilbao og flug heim með einni millilendingu.


ATH Skráningu í ferðir lýkur þann 10. apríl 2025.

Vinsamlegast sendið fyrirspurnir og pantanir á netfangið sigrunasdis@camino.is. Í pöntun þarf að koma fram: fullt nafn eins og í vegabréfi, kennitala, númer og gildistíma vegabréfs, sími og heimilisfang, taka fram hvort um einbýli eða tvíbýli sé að ræða.

Exit mobile version