Norðurleiðin – 160 km Jakobsvegurinn frá Írún til Bilbao
Á vegum Jakobs
Sigrún Ásdís Gísladóttir
+354 8606644
sigrunasdis@camino.is
Ferðatímabil: 3. – 13. september 2026
11 daga ferð, 10 gistinætur, 7 göngudagar, 2 frídagar, annar í miðri göngu, sá seinni í Bilbao.
Fjöldi: 8-12 manns.
Stutt ferðalýsing
Flogið er til Biarritz í Frakklandi með einni millilendingu, leiðsögumaður tekur á móti væntanlegum pílagrímum á flugvellinum, þaðan er ekið á gististað í Írún þar sem gangan hefst næsta dag.
Gengið er um græn héruð Baskalandsins á N-Spáni, upp og niður brekkur með útsýni yfir Biskayflóann og Atlanshafið fyrstu dagana.
Fallegar borgir eru á þessari leið: Bilbao sem verður fallegri með ári hverju og hefur sitt fræga Guggenheim safn og San Sebastian sem sögð er ein fegursta borg Spánar og er m.a. þekkt fyrir frábæran mat og tapas (pintxos) rétti. Falleg sjávarþorp og síðast en ekki sísta græn og væn sveitahéruð marka
Jakobsveginn til Bilbao þar sem þessari göngu lýkur. Lögð er áhersla á góðar gistingar og allan aðbúnað.
Verð
Verð á mann miðað við gistingu í tvíbýli – 460.850 kr.
Aukagjald er fyrir einbýli – 75.000 kr. Staðfestingargjald sem fæst ekki endurgreitt nema ferð falli niður – 80.000 kr.
Innifalið
Flug
Akstur til og frá flugvelli erlendis
Leiðsögn
Gisting og morgunverður alla daga
Akstur á gististað þar sem það er þörf
Trúss á einni 14 kg tösku
Pílagrímavegabréf
Aðgangur að Guggenheimsafninu í Bilbao
Spa í Bilbao að göngu lokinni
Kvöldverður síðasta kvöldið
Ekki innifalið
Tryggingar
Hádegis- og kvöldmatur
Frekari upplýsingar og skráning hjá Sigrúnu Ásdísi:
sigrunasdis@camino.is