Frá ( Pasaje) San Sebastian til Bilbao 5. – 14. júní
Ferðalýsing
1Brottfaradagur 5. júní
Keflavík – Bilbao
- Brottför Keflavik-Madrid: 09:05-15:20 Norwegian Airlines
- Brottför Madrid-Bilbao 21:55-23:00 Air Europe
- Akstur frá flugvelli að hóteli í Bilbao
- Hótel fyrstu nóttina í Bilbao: Hotel Ripa, Ripa,3,
2Fimmtud. 6. júní
1. göngudagur Pasajes – San Sebastian 10 km.
- Farið er á bíl frá Bilbao til bæjarins Pasajes
- Þetta er stuttur dagur og komum við því snemma dags á áfangastað.
- Byrjum á bátsferð í Pasajes, hefjum svo gönguna upp frá Pasajes með löngum tröppum upp á Ulia fjall
- Það er kaffihús á leiðinni eftir ca 6 km
- San Sebastian eða Donostia eins og hún heitir á máli Baskverja „euskera“hefur verið kölluð fallegasta borg Spánar. Hún er staðsett í Baskahéraðinu og liggur við Biscayflóa um það bil 20 km frá landamærum Frakklands og Spánar, Íbúar eru um 190 þús
- Tapas menning Baska er löngu þekkt. Um kvöldið förum við í gamla miðbæinn göngum á milli nokkurra tapas bara, smökkum og njótum
- Gistum á „ A room in the city“
3Föstud. 7. júní
2. göngudagur: San Sebastian – Getaria 25 km
- Leiðin liggur úr borginni meðfram ströndinni. Förum upp í hæðirnar og horfum út yfir sjóinn á aðra hönd og yfir græna sveitina á hina höndina.Við förum niður í bæ sem heitir Zarautz þar sem við fáum okkur að borða. Þarna er stundum vindasamt og surfing er mikið stundað.
- Á milli bæjanna Zarautz og Getaria er skemmtileg leið meðfram ströndinni sem við göngum eftir og er hún lengsta strönd á þessu svæði eða 2.8 km.
- Getaria sem er líka fiskibær eins og Zarautz, en báðir eiga sér sögu um hvalveiðar á árum áður. Íbúafjöldinn er um 3000, en þrátt fyrir það eru mörg frábær veitingahús sem bjóða upp á nýveiddan ferskan fisk.
- Gistum við á Hotel Itxas- Gain Getaria,
- Morgunmatur á hóteli
4Laugard. 8. júní
3. göngudagur: Getaria – Deba 18 km.
- Hefjum daginn á morgunmat og teygjum
- Höldum áfram göngunni upp á hæð fyrir ofan ströndina og göngum eftir stígum vel fyrir ofan og komum fljótlega niður í fallegan bæ sem heitir Zumaia, sem stendur við ánna Urola. Þessi bær varð til á 13. öld í kringum klaustur sem þarna er og var jafnan fyrir árásum sjóræningja á miðöldum.
- Í Zumaia er upplagt að fá sér kaffi í bakaríinu.
- Við göngum áfram um sveitir Baskalands, 2 þorp verða á leið okkar til Deba sem er 5 þús manna bær við sjóinn.
- Gistum á Hotel Kanala
5Sunnud. 9. júní
4. göngudagur: Deba – Markina 24 km
- Kveðjum hafið í bili. Göngum upp á við, tvö „fjöll“ eða hæðir.
- Þarna er stígurinn margskonar, klettóttur sums staðar og í fyrir ári var verið að ryðja skóg á þessu svæði.
- Göngum fram á nýlegt gistiskýli eftir ca 1.5 klst göngu. Öll nöfn á þessu svæði eru á basknesku og heitir skýlið Izabide Aterpetzea. Þarna er gott kaffi og gott að stoppa því ekki er um aðra staði að ræða á þessari dagleið. Höldum áfram upp á næstu hæð og að lokum komum við til Markina þar sem við fáum okkur að borða og gistum.
- Markina er kölluð „The University of pelota“ en það er baskneskur boltaleikur, en þarna fara fram margir slíkir leikir. Minjar frá fornsteinöld hafa fundist í Markina
- Gistum á Hotel Ansotegi
6Mánud. 10. júní
5. göngudagur Markina – Gernika 25 km (2,8 km)
- Í upphafi fylgjum við smá lækjarsprænu í áttina að þorpinu Bolibar og klaustri frá miðöldum sem heitir Zenarruza. Leiðin er skógi vaxin að hluta og frekar þægileg.
- Frelsishetjan Símon Bolivar fæddist í Bolibar. Hann leiddi sjálfstæðishreyfingu og sjálfstæðisbaráttu Venesúela, Kólumbíu, Ekvador, Perú, Panama og Bólivíu.
- Þægileg ganga og fallegt umhverfi. Leiðin liggur til Gerniku sem er hvað frægust fyrir samnefnt verk Picassos og lýsir andstyggð hans á voðaverkum sem framin voru í borgarstyrjöldinni á tímum Francos þegar hann með aðstoð þjóðverja lét jafna þorpið við jörðu í loftárásum 1937.
- Gistum á Hotel Urune í Muxika, 2,8 km frá Gerniku, tökum bíl frá Gerniku
7Þriðjud. 11. júní
6. göngudagur: Gernika (Muxika) – Lezama 18 km
- Stuttur göngudagur. Leiðin liggur uppá við í byrjun en lækkar síðan. Göngum eftir skógarstígum og sveitavegum alla leið til Lezama.
- Lezama er lítill bær sem liggur fyrir neðan fjallgarðinn sem við förum yfir næsta dag og leiðir okkur til Bilbao.
- Lezama er þekkt fyrir turnana þrjá frá miðöldum: Basabil, Arechavaleta og Lezama, en turnarnir voru kennileiti í hernaði miðalda.
- Þarna opna veitingahús kl 18 og gott að fá sér að borða góða pílagrímamáltíð, fara snemma í háttinn og hvíla okkur vel fyrir morgundaginn.
- Gistum á Hotel Rural Matsa
8Miðvikud. 12. júní
7. göngudagur: Lezama – Bilbao 12 km
- Tökum daginn snemma.
- Leiðin liggur í gegnum sveitina Zamudia og síðan yfir fjallið Avril. Þegar upp er komið göngum við í gegnum garð sem er uppi á fjallinu og sjáum yfir Bilbao. Gott er að hafa með sér smánesti og borða það í garðinum áður en lagt er af stað niður í borgina.
- Þægileg og skemmtileg ganga, borgin nálgast og leið okkar liggur í gamla bæinn þar sem er heitir Puerta de los peregrinos. Þar fáum við stimpil í dómkirkjunni sem heitir Catedral de Santiago. Fáum okkur kaffi á torginu og höldum svo á hótel.
- Gistum á Hotel Abando
9Fimmtud. 13. júní
Hvíldardagur í Bilbao. Skoðum Guggenheim safnið – Göngum meðfram ánni og um gamla bæinn, njótum!
- Guggenheimsafnið er eitt af kennileitum borgarinnar, byggingin er hönnuð af arkitektinum Frank Gehry.
- Safnið opnar kl 10 á morgnana, mæli með að við byrjum daginn á því að fara þangað, fáum okkur svo hressingu á safninu á eftir, tekur 2-3 klst. ca.
- Tökum okkur tíma til að ganga um gamla bæinn, skoða matarmarkað og fl
- Svo er frí hjá okkur, hittumst síðan og borðum saman síðasta kvöldið
- Borðum á ítalska staðnum Coppola
10Föstud. 14. júní
Heimferðardagur
- Tökum bíl á flugvöllinn um kl 4 um nóttina
- Tökum flug frá Bilbao flugvelli: 06:50
- Bilbao – Amsterdam
- Komutími 09:00
- Bið8 klst
- Brottför Amsterdam 17:30 Icelandair
- Heimkoma Keflavik 18:40
Pantanir og fyrirspurnir: Sigrún Ásdís, s. 860-6644 og sigrunasdis@camino.is
Verð og almennar upplýsingar
- Verð er kr 250.000 á mann miðað við tvo í herbergi
- Aukagjald fyrir einbýli er kr 20.000 ( ath ekki alls staðar í boði)
Innifalið í verði er:
- Flug
- Akstur til og frá flugvelli
- Leiðsögn
- Gisting og morgunverður
- Trúss ( 10-15 kg )
- Kvöldverður síðasta kvöldið
Lengd ferðar
- Samtals eru dagarnir 10, þar af eru göngudagar 7
- Komið til Bilbao að kvöldi 5. júní
- Fyrsti göngudagur er 6. júní
- Samtals verða gengnir u.þ.b. 140 km
- Einn aukadagur verða í Bilbao áður en haldið verður heim þann 14. júní.
- Á þessum tíma er meðalhiti í kringum 22° C fer niður í 10°C á nóttunni
Nokkrir punktar
- Töskur mega vera að hámarki 15 kg fyrir trússarana
- Á göngudögum þurfa töskur að vera komnar niður í andyri gististaðar kl 8 að morgni
- Morgunmatur er á gististað ef hægt er, annars finnur fararstjóri annan stað sem hægt er að fá morgunmat
- Lagt af stað helst ekki seinna en kl 08 á morgnana (að fyrsta og síðasta degi undanskyldum)
- Gengið er í þögn fyrstu 2 klst hvers dags
- Morgunteygjur gerðar við fyrstu hentugleika að morgni
- Innlegg dagsins kynnt áður en lagt er af stað