Frá O Ceibrero til Santiago 18. – 28. sept.
Ferðalýsing
1Föstud. 18. september
Keflavík – Santiago
- Brottför Keflavik- Santiago.. kemur síðar
- Akstur frá flugvelli að gististað fyrstu nóttina
- Nánar síðar
2Laugard. 19. september
1. göngudagur 0 Cebreiro- Triacastela 21 km
- Fyrstu 10 km dagsins er hæðóttur
- Eftir það er er lækkun um 500m
- Sjá má á nokkurra km fresti, stöpla sem segja okkur hversu margir km séu til Santiago
- Það er dásemd að hefja göngu á þessum slóðum, stundum þokukennt að morgni en þokan víkur fyrir sólinni fljótlega
- Stutt á milli staða þar sem hægt er að fá sér að borða og drekka ( fyrst eftir 3 km ca.)
- Gisting: kemur síðar!
3Sunnud. 20. september
2. göngudagur Tricastela – Sarria 19 km
- Hér má velja um tvær leiðir frá Tricastela; hægri= San Xil eða vinstri: Samos sem er 5 km lengri, en á þeirri leið má sjá elsta Monasterio Benedictino á Spáni, sjáum til hvor leiðin verður farin
- Byrjað er að fara upp á við 250 m en síðan liggur leiðin niður til Sarría sem er stærsti bærinn á þessari leið
- Lítið að hafa á þessari dagleið, vatn, hnetur og ávexti þarf að hafa meðferðis.
- Gisting: kemur síðar!
4Mánud. 21. september
3. göngudagur Sarría – Portomarin 22,5 km
- Gengið úr 450 m í 700 m
- Hér eru um 100 km eftir til Santiago
- Gengið um sveitir og þorp
- Engin vandræði með vatn eða mat
- Göngum framhjá u.þ.b. 20 þorpum !
- Barbadelo eftir 3,5 km er fyrsti áfangastaður. Síðan rekur hver annan
- Portomarín liggur beggja vegna við ánna Mino, Embalse de Belesar Dam sem er stífla var reist 1956-1962, við það var vatni veitt á dalinn og yfir gömlu borgina.
- Gisting: kemur síðar!
5Þriðjud. 22. september
4. göngudagur PortoMarín- Palas de Rei 22 km
- Hækkun dagsins kemur strax um morguninn, er úr 420-760 m, fer svo lækkandi ( Monte San Antonio)
- Eftir 7,6 km er viðkomustaður Gonzar
- 4,5 km er Hospital de la Cruz, hægt að borða
- Fyrr á öldum var hér pílagrímasjúkrahús sem er horfið núna
- Hæst stendur Ligonda, sem er skuggi þess sem áður var þegar hér var mikilvægur áningastaður með sjúkrahúsi, enn má sjá rústir kirkjugarðsins
- Gisting: kemur síðar!
6Miðvikud. 23. sept
5. göngudagur Palas de rei- Melide 16 km
- Stuttur og þægilegur dagur í dag
- Göngum mikið eftir skógartígum, hestar og kýr á beit í sveitinni, fuglasöngur og friðsæld
- Stutt á milli þorpa og bæja, nóg að hafa til að borða og drekka.
- Sveitir Galiciu minna stundum á Irland og sveitirnar þar,
- Á leið inni í Melide göngum við hjá kirkju San Pedro, þar er að finna leifar af 15. aldar veggmynd
- Gisting: kemur síðar!
7Fimmtud. 24. september
6. göngudagur Melide – Arzúa 15 km
- Stuttur og auðveldur dagur í dag
- Eins og síðustu daga er óþarfi að bera með sér mat, aðeins vatn, stutt er á milli þorpa.
- Boente de Baxixo er fyrsti áningarstaður eftir 5.4 km
- Ribadiso de Baixo, þar má sjá pílagrímasjúkahús frá 14. öld sem er notað sem albergue í dag.
- Gisting: kemur síðar!
8Föstud. 25. september
7. göngudagur Arzúa – Pedrouzo 19,5 km
- Því meir sem nálgast er Santiago því fleiri eru kirkjurnar og önnur minnismerki sem reist hafa verið á Jakobsstígnum.
- Göngum í gegnum mörg smáþorp og bæi og eins og áður er óþarfi að bera mikið með sér.
- Góðir og mjúkir göngustígar í dag
- Eftirvæntingin eykst, margir pílagrímar hafa bæst í hópinn og eftirvæntingin verður nánast áþreifanleg
- Þetta er dagur til að njóta og vera til, gangan auðveld og lokatakmarkið að nálgast.
- Gisting: kemur síðar!
9Laugard. 26. september
8. göngudagur Pedrouzo – Santiago de Compostela 20 km
- Dagurinn er tekinn snemma í dag, það er hátíðlegt að ganga þessa 20 km inn til Santiago
- Við komum við á fjallinu Monte Gozo en áður fyrr þá sást í Dómkirkju Santiago af þessari hæð.
- Höldum leið okkar áfram, þegar komið er inn í borgina stefnum við á Dómkirkjuna
- Þegar komið er að Dómkirkjunni þá afhendum við pílagrímavegabréfin okkar og sækjum seinna um daginn ásamt syndaaflausnarskjalinu
10Sunnud. 27. september
Dveljum í Santiago
- Nú á sér stað umbreyting; pílagrímar breytast í ferðamenn sem njóta borgarinnar,
- Dagskrá verður skipulögð með pílagrímum, hvort sem það verður fótsnyrting eða ferð á Heimsenda
- Nánar um það síðar…
- Njótum þess að hafa náð markmiðum okkar
- Þökkum fyrir alla þá reynslu sem okkur hefur hlotnast
- Förum heim sem nýjar manneskjur, reynslunni ríkari
11Mánud. 28. september
Heimferðardagur
- Tökum bíl á flugvöll
- Tökum flug frá Santiago flugvelli:
- Heimkoma Keflavik ….
Takk fyrir samfylgdina !
Pantanir og fyrirspurnir: Sigrún Ásdís, s. 860-6644 og sigrunasdis@camino.is
*Kortið sýnir leiðina í grófum dráttum en er ekki 100% nákvæmt.
Verð og Almennar upplýsingar
- Verð er kr 280.000 á mann miðað við tvo í herbergi
- Aukagjald fyrir einbýli er kr 30.000 ( ath ekki alls staðar í boði)
Innifalið í verði er:
- Flug
- Akstur til og frá flugvelli
- Leiðsögn
- Gisting og morgunverður
- Trúss ( 10-15 kg ) handfarangurstaska 40x55x20cm
- Kvöldverður síðasta kvöldið
Lengd ferðar
- Samtals eru dagarnir 11, þar af eru göngudagar 8
- Komið til Santiago að kvöldi 18. september
- Fyrsti göngudagur er 19. September, dagurinn byrjar með ökuferð til O Ceibrero þar sem gangan hefst
- Samtals verða gengnir u.þ.b. 150 km
- Einn frídagur verða í Santiago áður en haldið verður heim
- Á þessum tíma er meðalhiti í kringum 16° C fer niður í 10°C á nóttunni
Nokkrir punktar
- Töskur mega vera að hámarki 13 kg fyrir trússarana
- Á göngudögum þurfa töskur að vera komnar niður í andyri gististaðar kl 8 að morgni
- Morgunmatur er á gististað ef hægt er, annars finnur fararstjóri annan stað
- Lagt af stað helst ekki seinna en kl 08 á morgnana (að fyrsta og síðasta degi undanskyldum)
- Gengið er í þögn fyrstu 2 klst hvers dags
- Morgunteygjur gerðar við fyrstu hentugleika að morgni
- Innlegg dagsins kynnt áður en lagt er af stað