Frá ( Pasaje) San Sebastian til Bilbao 2. – 11. júní.
Ferðalýsing
1Þriðjud. 2. júní
Brottfarardagur
Keflavík – Bilbao
2Miðvikud. 3. júní
1. göngudagur Pasajes – San Sebastian 12 km
- Farið er á bíl frá Bilbao til bæjarins Pasajes
- Þetta er stuttur dagur og komum við því snemma dags á áfangastað.
- Byrjum á bátsferð í Pasajes, hefjum svo gönguna upp frá Pasajes með löngum tröppum upp á Ulia fjall
- Það er kaffihús á leiðinni eftir ca 6 km
- San Sebastian eða Donostia eins og hún heitir á máli Baskverja „euskera“hefur verið kölluð fallegasta borg Spánar. Hún er staðsett í Baskahéraðinu og liggur við Biscayflóa um það bil 20 km frá landamærum Frakklands og Spánar, Íbúar eru um 190 þús
- Tapas menning Baska er löngu þekkt. Um kvöldið förum við í gamla miðbæinn göngum á milli nokkurra tapas bara, smökkum og njótum
- Gisting
3Fimmtud. 4. júní
2. göngudagur San Sebastian – Getaria 25 km
- Leiðin liggur úr borginni meðfram ströndinni. Förum upp í hæðirnar og horfum út yfir sjóinn á aðra hönd og yfir græna sveitina á hina höndina.Við förum niður í bæ sem heitir Zarautz þar sem við fáum okkur að borða. Þarna er stundum vindasamt og surfing er mikið stundað.
- Borðum hádegismat í Orio
- Á milli bæjanna Zarautz og Getaria er skemmtileg leið meðfram ströndinni sem við göngum eftir og er hún lengsta strönd á þessu svæði eða 2.8 km.
- Getaria er líka fiskibær eins og Zarautz, en báðir eiga sér sögu um hvalveiðar á árum áður. Íbúafjöldinn er um 3000, en þrátt fyrir það eru mörg frábær veitingahús sem bjóða upp á nýveiddan ferskan fisk.
- Gisting:
4Föstud. 5. júní
3. göngudagur Getaria – Deba 21 km
- Hefjum daginn á morgunmat og teygjum
- Höldum áfram göngunni upp á hæð fyrir ofan ströndina og göngum eftir stígum vel fyrir ofan og komum fljótlega niður í fallegan bæ sem heitir Zumaia, sem stendur við ánna Urola. Þessi bær varð til á 13. öld í kringum klaustur sem þarna er og var jafnan fyrir árásum sjóræningja á miðöldum.
- Í Zamudio er upplagt að fá sér kaffi í bakaríinu.
- Við göngum áfram um sveitir Baskalands, 2 þorp verða á leið okkar til Deba sem er 5 þús manna bær við sjóinn.
- Gisting:
5Laugard. 6. júní
4. göngudagur Deba – Markina 25 km
- Kveðjum hafið í bili. Göngum upp á við, tvö „fjöll“ eða hæðir.
- Þarna er stígurinn margskonar, klettóttur sums staðar, einnig gengið í gegnum svæði skógarbænda
- Göngum fram á nýlegt gistiskýli eftir ca 1.5 klst göngu. Öll nöfn á þessu svæði eru á basknesku og heitir skýlið Izabide Aterpetzea. Þarna er gott kaffi og gott að stoppa því ekki er um aðra staði að ræða á þessari dagleið. Höldum áfram upp á næstu hæð og að lokum komum við til Markina þar sem við fáum okkur að borða og gistum.
- Markina er kölluð „The University of pelota“ en það er baskneskur boltaleikur, en þarna fara fram margir slíkir leikir. Minjar frá fornsteinöld hafa fundist í Markina
- Gisting:
6Sunnud. 7. júní
5. göngudagur Markina – Gernika 25 km
- Í upphafi fylgjum við smá lækjarsprænu í áttina að þorpinu Bolibar og klaustri frá miðöldum sem heitir Zenarruza. Leiðin er skógi vaxin að hluta og frekar þægileg
- Frelsishetjan Símon Bolivar fæddist í Bolibar. Hann leiddi sjálfstæðishreyfingu og sjálfstæðisbaráttu Venesúela, Kólumbíu, Ekvador, Perú, Panama og Bólivíu
- Þægilegur göngudagur
- Þægileg ganga og fallegt umhverfi. Leiðin liggur til Gerniku sem er hvað frægust fyrir samnefnt verk Picassos og lýsir andstyggð hans á voðaverkum sem framin voru í borgarstyrjöldinni á tímum Francos þegar hann með aðstoð Þjóðverja lét jafna þorpið við jörðu í loftárásum 1937
7Mánud. 8. júní
6. göngudagur Gernika(Muxika) – Lezama 22 km
- Stuttur göngudagur. Leiðin liggur uppá við í byrjun en lækkar síðan. Göngum eftir skógarstígum og sveitavegum alla leið til Lezama.
- Lezama er lítill bær sem liggur fyrir neðan fjallgarðinn sem við förum yfir næsta dag og leiðir okkur til Bilbao.
- Lezama er þekkt fyrir turnana þrjá frá miðöldum: Basabil, Arechavaleta og Lezama, en turnarnir voru kennileiti í hernaði þeirra tíma.
- Þarna opna veitingahús kl 18 og gott að fá sér að borða góða pílagrímamáltíð, fara snemma í háttinn og hvíla okkur vel fyrir morgundaginn.
8Þriðjud. 9. júní
7. göngudagur Lezama – Bilbao 12 km
- Tökum daginn snemma. Síðasti göngudagurinn !
- Leiðin liggur í gegnum sveitina Zamudia og síðan yfir fjallið Avril. Þegar upp er komið göngum við í gegnum garð sem er uppi á fjallinu og sjáum yfir Bilbao.
- Gott er að hafa með sér smánesti og borða það í garðinum áður en lagt er af stað niður í borgina.
- Þægileg og skemmtileg ganga, borgin nálgast og leið okkar liggur í gamla bæinn þar sem er heitir Puerta de los peregrinos. Þar fáum við stimpil í dómkirkjunni sem heitir Catedral de Santiago. Fáum okkur kaffi á torginu og höldum svo á hótel.
- Gisting
9Miðvikud. 10. júní
Hvíldardagar í Bilbao. Skoðum Guggenheim safnið og margt fleira
Göngum meðfram ánni og um gamla bæinn. Njótum!
- Guggenheimsafnið er eitt af kennileitum borgarinnar, byggingin er hönnuð af arkitektinum Frank Gehry.
- Safnið opnar kl 10 á morgnana, mæli með að við byrjum daginn á því að fara þangað, fáum okkur svo hressingu á safninu á eftir, tekur 2-3 klst. ca.
- Tökum okkur tíma til að ganga um gamla bæinn, skoða matarmarkað og fl
- Svo er frí hjá okkur, hittumst síðan og borðum saman síðasta kvöldið
- Borðum á ítalska staðnum Coppola um kvöldið
Pantanir og fyrirspurnir: Sigrún Ásdís, s. 8606644 og sigrunasdis@camino.is
*Kortið sýnir leiðina í grófum dráttum en er ekki 100% nákvæmt.
Verð og almennar upplýsingar
- Verð er kr 280.000 á mann miðað við tvo í herbergi
- Aukagjald fyrir einbýli er kr 30.000 ( ath ekki alls staðar í boði)
Innifalið í verði er:
- Flug og gisting
- Akstur til og frá flugvelli erlendis
- Leiðsögn
- Morgunverður á göngudögum
- Trúss ein taska á mann, handfarangurstaska 55x20x40 cm
- Kvöldverður síðasta kvöldið
- Fjöldi: 8-10
Lengd ferðar
- Samtals 10 dagar, þar af eru göngudagar 7
- Komið til Bilbao að kvöldi 2. júní
- Fyrsti göngudagur er 3. júní
- Samtals verða gengnir u.þ.b. 140 km
- Einn aukadagur verður í Bilbao áður en haldið verður heim þann 11. júní
- Á þessum tíma er meðalhiti í kringum 22° C fer niður í 10°C á nóttunni
Nokkrir punktar
- Töskur mega vera að hámarki 13 kg fyrir trússarana
- Á göngudögum þurfa töskur að vera komnar niður í andyri gististaðar kl 8 að morgni
- Morgunmatur er á gististað ef hægt er, annars finnur fararstjóri annan stað
- Lagt af stað helst ekki seinna en kl 08 á morgnana (að fyrsta og síðasta degi undanskyldum)
- Gengið er í þögn fyrstu 2 klst hvers dags
- Morgunteygjur gerðar við fyrstu hentugleika að morgni
- Innlegg dagsins kynnt áður en lagt er af stað