Frá (Pasaje) San Sebastian til Bilbao 15. – 24. sept.

Ferðalýsing


1Miðvikud. 15. september

Brottfarardagur

Keflavík – Bilbao

2Fimmtudagurinn. 16. september

1. göngudagur Pasajes – San Sebastian  12 km

  • Farið er á bíl frá Bilbao til bæjarins Pasajes
  • Þetta er stuttur dagur og komum við því snemma dags á áfangastað.
  • Byrjum á bátsferð í Pasajes, hefjum svo gönguna upp frá Pasajes með löngum tröppum upp á Ulia fjall
  • Það er kaffihús á leiðinni eftir ca 6 km
  • San Sebastian eða Donostia eins og hún heitir á máli Baskverja „euskera“hefur verið kölluð fallegasta borg Spánar. Hún er staðsett í Baskahéraðinu og liggur við Biscayflóa um það bil 20 km frá landamærum Frakklands og Spánar, Íbúar eru um 190 þús
  • Tapas menning Baska er löngu þekkt. Um kvöldið förum við í gamla miðbæinn göngum á milli nokkurra tapas bara, smökkum og njótum
  • Gisting

3Föstudagurinn. 17. september

2. göngudagur San Sebastian – Getaria 25 km

  • Leiðin liggur úr borginni meðfram ströndinni. Förum upp í hæðirnar og horfum út yfir sjóinn á aðra hönd og yfir græna sveitina á hina höndina.Við förum niður í bæ sem heitir Zarautz þar sem við fáum okkur að borða. Þarna er stundum vindasamt og surfing er mikið stundað.
  • Borðum hádegismat í Orio
  • Á milli bæjanna Zarautz og Getaria er skemmtileg leið meðfram ströndinni sem við göngum eftir og er hún lengsta strönd á þessu svæði eða 2.8 km.
  • Getaria er líka fiskibær eins og Zarautz, en báðir eiga sér sögu um hvalveiðar á árum áður. Íbúafjöldinn er um 3000, en þrátt fyrir það eru mörg frábær veitingahús sem bjóða upp á nýveiddan ferskan fisk.
  • Gisting:

4Laugardagurinn. 18. september

3. göngudagur Getaria – Deba 21 km

  • Hefjum daginn á morgunmat og teygjum
  • Höldum áfram göngunni upp á hæð fyrir ofan ströndina og göngum eftir stígum vel fyrir ofan og komum fljótlega niður í fallegan bæ sem heitir Zumaia, sem stendur við ánna Urola. Þessi bær varð til á  13. öld í kringum klaustur sem þarna er og var jafnan fyrir árásum sjóræningja á miðöldum.
  • Í Zamudio er upplagt að fá sér kaffi í bakaríinu.
  • Við göngum áfram um sveitir Baskalands, 2 þorp verða á leið okkar til Deba sem er 5 þús manna bær við sjóinn.
  • Gisting:

5Sunnud. 19. september

4. göngudagur Deba – Markina  25 km

  • Kveðjum hafið í bili. Göngum upp á við, tvö „fjöll“ eða hæðir.
  • Þarna er stígurinn margskonar, klettóttur sums staðar, einnig gengið í gegnum svæði skógarbænda
  • Göngum fram á nýlegt gistiskýli eftir ca 1.5 klst göngu. Öll nöfn á þessu svæði eru á basknesku og heitir skýlið Izabide Aterpetzea. Þarna er gott kaffi og gott að stoppa því ekki er um aðra staði að ræða á þessari dagleið. Höldum áfram upp á næstu hæð og að lokum komum við til Markina þar sem við fáum okkur að borða og gistum.
  • Markina er kölluð „The University of pelota“ en það er baskneskur boltaleikur, en þarna fara fram margir slíkir leikir. Minjar frá fornsteinöld hafa fundist í Markina
  • Gisting:

6Mánud. 20. sept

5. göngudagur Markina – Gernika 25 km

  • Í upphafi fylgjum við smá lækjarsprænu í áttina að þorpinu Bolibar og klaustri frá miðöldum sem heitir Zenarruza. Leiðin er skógi vaxin að hluta og frekar þægileg
  • Frelsishetjan Símon Bolivar fæddist í Bolibar. Hann leiddi sjálfstæðishreyfingu og sjálfstæðisbaráttu Venesúela, Kólumbíu, Ekvador, Perú, Panama og Bólivíu
  • Þægilegur göngudagur
  • Þægileg ganga og fallegt umhverfi. Leiðin liggur til Gerniku sem er hvað frægust fyrir samnefnt verk Picassos og lýsir andstyggð hans á voðaverkum sem framin voru í borgarstyrjöldinni á tímum Francos þegar hann með aðstoð Þjóðverja lét jafna þorpið við jörðu í loftárásum 1937

7Þriðjud. 21. sept

6. göngudagur Gernika(Muxika) – Lezama 22 km

  • Stuttur göngudagur. Leiðin liggur uppá við í byrjun en lækkar síðan. Göngum eftir skógarstígum og sveitavegum alla leið til Lezama.
  • Lezama er lítill bær sem liggur fyrir neðan fjallgarðinn sem við förum yfir næsta dag og leiðir okkur til Bilbao.
  • Lezama er þekkt fyrir turnana þrjá frá miðöldum: Basabil, Arechavaleta og Lezama, en turnarnir voru kennileiti í hernaði þeirra tíma.
  • Þarna opna veitingahús kl 18 og gott að fá sér að borða góða pílagrímamáltíð, fara snemma í háttinn og hvíla okkur vel fyrir morgundaginn.

8Miðvikud. 22. sept

7. göngudagur Lezama – Bilbao 12 km

  • Tökum daginn snemma. Síðasti göngudagurinn !
  • Leiðin liggur í gegnum sveitina Zamudia og síðan yfir fjallið Avril. Þegar upp er komið göngum við í gegnum garð sem er uppi á fjallinu og sjáum yfir Bilbao.
  • Gott er að hafa með sér smánesti og borða það í garðinum áður en lagt er af stað niður í borgina.
  • Þægileg og skemmtileg ganga, borgin nálgast og leið okkar liggur í gamla bæinn þar sem er heitir Puerta de los peregrinos. Þar fáum við stimpil í dómkirkjunni sem heitir Catedral de Santiago. Fáum okkur kaffi á torginu og höldum svo á hótel.
  • Gisting

9Fimmtud. 23. sept

Hvíldardagar í Bilbao. Skoðum Guggenheim safnið og margt fleira
Göngum meðfram ánni og um gamla bæinn. Njótum!

  • Guggenheimsafnið er eitt af kennileitum borgarinnar, byggingin er hönnuð af arkitektinum Frank Gehry.
  • Safnið opnar kl 10 á morgnana, mæli með að við byrjum daginn á því að fara þangað, fáum okkur svo hressingu á safninu á eftir, tekur 2-3 klst. ca.
  • Tökum okkur tíma til að ganga um gamla bæinn, skoða matarmarkað og fl
  • Svo er frí hjá okkur, hittumst síðan og borðum saman síðasta kvöldið
  • Borðum á ítalska staðnum Coppola um kvöldið

10Föstud. 24. sept

Heimferðardagur


Pantanir og fyrirspurnir: Sigrún Ásdís, s. 8606644 og sigrunasdis@camino.is

*Kortið sýnir leiðina í grófum dráttum en er ekki 100% nákvæmt.

Verð og almennar upplýsingar

  • Verð á mann miðað við tvo í herbergi ATH verð kemur síðar
  • Aukagjald fyrir einbýli er kr 30.000 (ath ekki alls staðar í boði)

Innifalið í verði er:

  • Flug og gisting
  • Akstur til og frá flugvelli erlendis
  • Leiðsögn
  • Morgunverður á göngudögum
  • Trúss ein taska á mann, handfarangurstaska 55x20x40 cm
  • Kvöldverður síðasta kvöldið
  • Fjöldi: 8-10

Lengd ferðar

  • Samtals 10 dagar, þar af eru göngudagar 7
  • Komið til Bilbao að kvöldi 15. sept
  • Fyrsti göngudagur er 16. sept
  • Samtals verða gengnir u.þ.b. 140 km
  • Einn aukadagur verður í Bilbao áður en haldið verður heim þann 24. sept
  • Á þessum tíma er meðalhiti í kringum 22° C fer niður í 10°C á nóttunni

Nokkrir punktar

  • Töskur mega vera að hámarki 13 kg fyrir trússarana
  • Á göngudögum þurfa töskur að vera komnar niður í andyri gististaðar kl 8 að morgni
  • Morgunmatur er á gististað ef hægt er, annars finnur fararstjóri annan stað
  • Lagt af stað helst ekki seinna en kl 08 á morgnana (að fyrsta og síðasta degi undanskyldum)
  • Gengið er í þögn fyrstu 2 klst hvers dags
  • Morgunteygjur gerðar við fyrstu hentugleika að morgni
  • Innlegg dagsins kynnt áður en lagt er af stað