UPPSELT


Á vegum Jakobs
Sigrún Ásdís Gísladóttir
+354 8606644
sigrunasdis@camino.is


Einstakt tækifæri til að ganga allan Jakobsveginn frá Saint Jean Pied de Port til Santiago.

Fyrsti göngudagur er 25. apríl, komið til Santiago 31. maí.

3 hvíldardagar teknir á leiðinni, búið er að stytta nokkra lengstu dagleiðirnar.

Einn eða fleiri frídagar í lokin í Santiago.

Heimferð áætluð 6. Júní frá Porto í Portúgal með beinu flugi heim með Play.

Fararstjórn, góðar gistingar og trúss á töskum.

Nánar upplýsingar: Endilega sendið fyrirspurnir og pantanir á netfangið sigrunasdis@camino.is



Nokkrir punktar

  • Töskur mega vera að hámarki 13 kg fyrir trússið
  • Á göngudögum þurfa töskur að vera komnar niður í andyri gististaðar kl 8 að morgni
  • Morgunmatur er á gististað ef hægt er, annars finnur fararstjóri annan stað
  • Lagt af stað helst ekki seinna en kl 8:30 á morgnana (að fyrsta og síðasta degi undanskyldum)
  • Gengið er í þögn fyrstu 2 klst hvers dags (ekki skylda en val hvers og eins)
  • Morgunteygjur gerðar við fyrstu hentugleika að morgni
  • Innlegg dagsins kynnt áður en lagt er af stað eftir teygjur

Almennt um ferðirnar

Metnaður er lagður í góðar gistingar alls staðar, en markast af úrvali á hverjum stað fyrir sig. Í Santiago de Compostela að ferð lokinni er gist í tvær nætur á 5 stjörnu hótel þar sem í boði er sundlaug, gufa og sauna.

Góður morgunmatur er í boði alla daga, nesti er útbúið fyrir hádegið ef enginn veitingastaður er á dagleiðinni sem þó oftast er.

Gott er að ákveða sig sem fyrst en í boði er ráðgjöf varðandi undirbúning allan (sem er í raun hluti af ferðinni) og hreyfingu til að gera ferðina sem allra ánægjulegasta.